Nánar um frétt

Hverjir standa að verkefninu Pinnið á minnið?

Með verkefninu Pinnið á minnið er notkun greiðslukorta með örgjörva innleidd á Íslandi. Greiðsluveitan hf., dótturfyrirtæki Seðlabanka Íslands, sér um framkvæmd verkefnisins ásamt færsluhirðunum Borgun, Valitor og Teller (samstarfsaðila Kortaþjónustunnar). Verkefnið Pinnið á minnið er unnið með heimild Samkeppniseftirlitsins samanber ákvörðun 18/2010.